Valdahroki
Posted by fimbulfambl on February 23, 2006
Veit ekki hvort þið heyrðuð hádegisfréttirnar á Bylgjuni í gær en þar var ein frétt sem vakti athygli mína. Þannig var að fjármálaráðherra Árni Mathiessen var spurður um það þegar að Kastljósið, fréttastofa NFS og prófessor í Háskólanum, Stefán Ólafsson höfðu allir komist að sömu niðurstöðu um að skattbyrði tekjulágra einstaklinga og þeirra sem eru með millitekjur hefur hækkað miðað við síðustu tíu ár meðan skattbyrði þeirra sem hæst hafa launin hefur lækkað, fjármálaherra sagði bara að þetta væri hin argasta vitleysa hjá öllum þessum aðilum, skattarnir hafa lækkað, síðan sagði hann að íslendingar væru nú ekki þekktir fyrir að vera góðir í reikningi, það hefði rannsóknir á íslenska skólakerfinu sýnt, og þetta væri bara dæmi um það. Hvað finnst ykkur, þegar menn hafa setið á valdastólum í tæp sextán ár eru menn ekki orðnir svo umkringdir af “já” mönnum að þegar einhver rökstudd gagnrýni birtist á þá, þá er það bara bull. Er ekki tími til kominn að gefa þessum mönnum frí og leyfa öðrum að komast að. Ég er allavegana búinn að fá uppí kok af núverandi valdhöfum.
Vinsamlega kjósið einhverja aðra þá í næstu kosningum.
Kv. Fimbulfambli
sætar said
ekkert blogg !! hemm…ertu nú farin að svindla kallinn!! eitthvað er það