Nú á að taka sér tak

Just another WordPress.com weblog

Óþolandi útvarpskonur

Posted by fimbulfambl on February 22, 2006

skrítinn titill ég veit en þegar maður er í vinnu eins og ég og með útvarpið í eyrunum allan daginn þá fær maður nóg af ákveðnum aðilum í útvarpi. Ég get ekki hlustað á flestar útvarpskonur sem starfa á Rás 2 fæ grænar bólur af að hlusta á þær sérstaklega þær sem starfa í morgunútvarpinu og í síðdegisútvarpinu þar, þær eru að mínu mati ílla undirbúnar og þegar þær eru með viðtöl þá spyrja þær fáranlegra spurninga, spurningar sem augljós svör eru við og algjörlega tilgangslaust að spyrja, ohhhhhh ég er að verða búinn að fá nóg af þessum blessuðu konum, alltaf að reyna að vera sniðugar og fyndnar en skjóta gjörsamleg yfir markið :-( sem betur fer er val um útvarpsstöðvar og get ég sagt ykkur að besta útvarpsstöðin á landinu er Gamla gufan, rás 1, leita æ meira þangað þar sem mér finnst tíminn líða hraðar á að hlusta á talað mál heldur en síbyljuna sem er í útvarpinu. Og uppáhalds útvarpþátturinn minn er “Orð skulu standa” mæli með honum spurningaþáttur um íslenskt mál. Þið haldið örugglega að ég sé hundgamall en ég er nú bara 28 ára ;-)

Jæja nóg af þessu “fúll á móti” í mér, fundurinn í gær var um átdagana í næstu viku þ.e. bolludagur, sprengidagur og öskudagur, tók þá ákvörðum að láta þessa daga ekkert trufla hjá mér DDV-ið ætla bara að halda mínu striki sleppa saltkjöti og baunum og bollunum öllum, víst ég gat sleppt sælgæti og konfekti um jólin þá get ég alveg sleppt bollum og saltkjöti í ár. Breytt hugarfar er farið að skila sér hjá mér þ.e. að hugsa ekki svo mikið hvað ég er að léttast mikið, heldur meira hvað ég er að fá gott að borða og hvað mér líður vel yfir að hafa tekið þessa ákvörðun um breyttan lífsstíl og nú eru 25 kg farinn án þess að mér finnist ég hafa þurft að hafa svo mikið fyrir því.

Kv. Fimbulfambli

3 Responses to “Óþolandi útvarpskonur”

  1. silley said

    Já engar bollur
    og til hamingju með 25kg

  2. sætar said

    Til hamingju með kílóin :)
    haltu áfram að slá í gegn þetta er frábær árangur hjá þér

  3. Elsa Hlín said

    Til hamingju með léttinguna 25 kg svakalega flott, ég ætla líka að sleppa bollum en ekki saltkjöti. ég sleppti öllu sætu um jólin en borðaði hangikjöt og varð ekki meint af því

    Kveðja E.A.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.