Nú á að taka sér tak

Just another WordPress.com weblog

Loksins Loksins

Posted by fimbulfambl on March 22, 2006

Það var mikið loksins fór ég yfir 1 kílóa múrinn í vigtun og náði mér í límmiða jbbííí. Það fóru 1,5 kg í síðustu viku og ég er að vonast að ég sé kominn á rétt ról núna, ég er þá búinn að kveðja 28,2 kg :=)

Kv Fimbulfambli

Posted in Ýmislegt | 3 Comments »

Langt er síðan

Posted by fimbulfambl on March 20, 2006

ég bloggaði síðast. Þetta hefur gegnið svona upp og ofan síðustu vikur og kílóin hafa ekki beint flogið af mér. En þetta hefur mjakast og er ég kominn niður í 93,6 kg og eru þá 26, 7 kíló farin af mér síðan í september á síðasta ári. Það er óhætt að segja að manni líður MIKLU MIKLU betur allur léttari á sér. Það fóru 900 gr síðast en ég hef ekki náð að komast yfir eins kílóa létting mjög lengi, en tók góða viku þessa síðustu borðaði mikinn lax þannig að vonir standa til að vigtin verði jákvæðari á morgun þegar næsta vigtun er.

Kv Fimbulfambli

Posted in Ýmislegt | 1 Comment »

Valdahroki

Posted by fimbulfambl on February 23, 2006

Veit ekki hvort þið heyrðuð hádegisfréttirnar á Bylgjuni í gær en þar var ein frétt sem vakti athygli mína. Þannig var að fjármálaráðherra Árni Mathiessen var spurður um það þegar að Kastljósið, fréttastofa NFS og prófessor í Háskólanum, Stefán Ólafsson höfðu allir komist að sömu niðurstöðu um að skattbyrði tekjulágra einstaklinga og þeirra sem eru með millitekjur hefur hækkað miðað við síðustu tíu ár meðan skattbyrði þeirra sem hæst hafa launin hefur lækkað, fjármálaherra sagði bara að þetta væri hin argasta vitleysa hjá öllum þessum aðilum, skattarnir hafa lækkað, síðan sagði hann að íslendingar væru nú ekki þekktir fyrir að vera góðir í reikningi, það hefði rannsóknir á íslenska skólakerfinu sýnt, og þetta væri bara dæmi um það. Hvað finnst ykkur, þegar menn hafa setið á valdastólum í tæp sextán ár eru menn ekki orðnir svo umkringdir af “já” mönnum að þegar einhver rökstudd gagnrýni birtist á þá, þá er það bara bull. Er ekki tími til kominn að gefa þessum mönnum frí og leyfa öðrum að komast að. Ég er allavegana búinn að fá uppí kok af núverandi valdhöfum.

Vinsamlega kjósið einhverja aðra þá í næstu kosningum.

Kv. Fimbulfambli

Posted in Ýmislegt | 1 Comment »

Óþolandi útvarpskonur

Posted by fimbulfambl on February 22, 2006

skrítinn titill ég veit en þegar maður er í vinnu eins og ég og með útvarpið í eyrunum allan daginn þá fær maður nóg af ákveðnum aðilum í útvarpi. Ég get ekki hlustað á flestar útvarpskonur sem starfa á Rás 2 fæ grænar bólur af að hlusta á þær sérstaklega þær sem starfa í morgunútvarpinu og í síðdegisútvarpinu þar, þær eru að mínu mati ílla undirbúnar og þegar þær eru með viðtöl þá spyrja þær fáranlegra spurninga, spurningar sem augljós svör eru við og algjörlega tilgangslaust að spyrja, ohhhhhh ég er að verða búinn að fá nóg af þessum blessuðu konum, alltaf að reyna að vera sniðugar og fyndnar en skjóta gjörsamleg yfir markið :-( sem betur fer er val um útvarpsstöðvar og get ég sagt ykkur að besta útvarpsstöðin á landinu er Gamla gufan, rás 1, leita æ meira þangað þar sem mér finnst tíminn líða hraðar á að hlusta á talað mál heldur en síbyljuna sem er í útvarpinu. Og uppáhalds útvarpþátturinn minn er “Orð skulu standa” mæli með honum spurningaþáttur um íslenskt mál. Þið haldið örugglega að ég sé hundgamall en ég er nú bara 28 ára ;-)

Jæja nóg af þessu “fúll á móti” í mér, fundurinn í gær var um átdagana í næstu viku þ.e. bolludagur, sprengidagur og öskudagur, tók þá ákvörðum að láta þessa daga ekkert trufla hjá mér DDV-ið ætla bara að halda mínu striki sleppa saltkjöti og baunum og bollunum öllum, víst ég gat sleppt sælgæti og konfekti um jólin þá get ég alveg sleppt bollum og saltkjöti í ár. Breytt hugarfar er farið að skila sér hjá mér þ.e. að hugsa ekki svo mikið hvað ég er að léttast mikið, heldur meira hvað ég er að fá gott að borða og hvað mér líður vel yfir að hafa tekið þessa ákvörðun um breyttan lífsstíl og nú eru 25 kg farinn án þess að mér finnist ég hafa þurft að hafa svo mikið fyrir því.

Kv. Fimbulfambli

Posted in Ýmislegt | 3 Comments »

Já já já

Posted by fimbulfambl on February 21, 2006

Já ég léttist um 1,3 kg í dag og er býsna ánægður með það og eru þá 25 kg kvödd yfir allt og komi þau aldrei til baka aftur

Posted in Vigtanir | 2 Comments »

Veit einhver….

Posted by fimbulfambl on February 18, 2006

Hvar maður fær þessa íslensku útgafu af wordpress? Endilega segið mér frá

Kv. Fimbulfambl

Posted in Ýmislegt | 1 Comment »

Myndaprufur

Posted by fimbulfambl on February 18, 2006

Ég búinn að léttast um 20kg

Posted in Ýmislegt | Leave a Comment »

Er enn að að prufa nýjar bloggslóðir

Posted by fimbulfambl on February 18, 2006

Jæja mér líst nú betur á þessa síðu en myblog.is er að pæla í að flytja bloggið mitt en og aftur

Posted in Ýmislegt | 1 Comment »

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.